8.8.2008 | 12:19
Falleg saga.
Liggur við að manni hlýni um hjartaræturnar að lesa þetta.
Segi eins og gamla fólkið sagði oft á tíðum. " Blessuð skepnan"
![]() |
Folald tekið í fóstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.8.2008 | 18:32
Frónið farsældarinnar undir fótum á ný. Heima.
Fagur var Faxaflóinn í gærkvöld.
Datt í hug ljóðlínur Þorsteins Þorskabíts þegar ég leit heim á Akranes og þaðan upp í Borgarfjörðinn: " Girt með fríðum fjallakrans, frægsta byggðin móðurlands. Borgarfjarðarhérað hlýtt, heillaríkt og fegurð skrýtt". Flóinn fullur af lífi, hnúfubakar og hrefnur. Suður af Vestmannaeyjum voru Sandreyðar og búrhval sá ég líka pústa lengi, greinilega eftir langt djúpkaf á svipuðum slóðum.
Heim. Að koma heim. Alltaf sérstakt, alltaf sérstök tilfinning. Góðir túrar , slæmir túrar , la la túrar, alveg sama hvernig á það er litið, þá er alltaf gott að koma heim. Við sjómenn finnum svo vel hversu mikils virði það er að eiga sér þennan stað, þetta athvarf sem er heimilið okkar sá staður sem við komum heim til. Manni hættir til að gleyma því stundum í hversdeginum, hversu mikilvægt það er að eiga þennan samastað og njóta hans. Þetta er ekki spurning um marmara, demata , perlur né skínandi gull, heldur er það að vera innan um sitt persónulega, setjast í sinn stól og leggjast í sitt rúm.
Það að koma heim til Íslands eitt og sér er einnig góð tilfinning. Hér er samankomið það sem stendur manni nærri eins og gefur að skilja, menningin og sagan. Fyrst að koma heim og svo að fara heim til sín.
En nóg um svona pælingar, ætlast ekki til að þið skiljið þetta, en svona grautast þetta í mínum haus.
Ljúf og góð sjóferð að baki, á góðu skipi, með góðri áhöfn, og sérdeilis ánægjulegt að sigla með Engilbert skipstjóra. Ég verð líka að geta hans Rabba ( Rafn) yfirstýrimanns , en við skiptumst á að stjórna skipinu á vöktum, og á vaktaskiptum þurfa menn að skilja hvorn annan, bæði hvað varðar siglingu skipsins, svo og lestun og losun, en yfirstýrimaður er aðalmaðurinn í lestun og losun, og stjórnar því bingói. Því er nauðsynlegt að menn vinni vel saman. Gott að vinna með Rabba.
Vinnusvæði okkar skipstjórnarmanna í brúnni, héðan er skipinu stjórnað á siglingu.
Engin smásmíði þessi brú, í þessum fermetrum væri hægt að innrétta glæsilega íbúð, nóg er plássið. Gott að vinna í svona aðstöðu.
Það þarf ekki að vera að garga skipanir hægri og vinstri um borð í þessu skipi, hér kunna menn sitt fag og þeim er full treystandi fyrir því að klára sitt, svo skipið skili sínu. En um það snýst farmennskan. Að skila skipi, fólki og farmi heilu í höfn á réttum tíma, eins þarf að sjá til þess að allt sé í lagi og öryggis sé gætt í hvívetna.
Í kaffimessanum á A dekkinu , en aðal borðsalurinn er á C dekki. Frá v. simbi bryti, Gunni Hilmars og Jóhannes bátsmaður.
Hérna er svo undirritaður í tölvunni í bakborðsbrúarvæng, unnið við lestun og losun í Færeyjum. Þarna sjáum við yfir allt dæmið og getum bókað gámana og staðsetningu jafnóðum.
Og kaffið . Því er hesthúsað heldur betur þarna. Keypti þessa könnu í slússunni í Bruhnsbuttel á leið inn í Kielarskurðinn. Afgreiðslumaðurinn þar var sá óþjónustulundaðisti sem ég hefi fyrirhitt, hef þó upplifað ýmislegt. En kannan er góð.
Vil þakka áhöfn Goðafoss fyrir túrinn, ekki fyrsta skipti sem ég sigli hér og vonandi ekki það síðasta. Þið eruð flottastir!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
2.8.2008 | 16:08
Sólskin á Skagerak, Norðursjór og Atlanshafið framundan
Laugardagurinn fagur og fríður. Sigldum vestur með Noregsströndum, komir úr allri megin traffíkinni núna. Enn saddur eftir skötuna og saltfiskinn, en hér hjá Eimskip er haldið í þann góða sið, hvar í heimi sem er, og grauturinn mmmm hann var "góvur".
Hér er siglt , gekk 21 mílu á vaktinni í nótt. Þegar skipstjóri kom upp í morgun var dregið af vélinni til að spara , við erum á góðum tíma núna, ekkert liggur á. Þrátt fyrir að hafa slegið af þá vorum við að taka fram úr Helgafellinu frá Samskipum, Helgafellið er nánast nýtt skip, smíðað í Þýskalandi, Sietas skip svokallað, gæðafarkostur. Goðafoss er hins vegar 10 ára gamal, smíðaður í Danmörku, mikið var í hann lagt ásamt systurskipinu Dettifossi, en þau voru stærst gámaskipa sem Örskov værft í Fredrikshavn smíðaði og fyrir vikið fór værftið á hausinn eftir að hafa komið þeim frá sér, grænlandsfarið sem var í smíðum var klárað af öðru værfti ( skipsamíðastöð). Í þessari seríu voru smíðuð alls 16 skip í 4 stærðum. Minnst voru gamla Helgafell og Arnarfell, þá aðeins stærri Núverandi Brúarfoss og Selfoss ásamt systurskipinu Kenza ,sem enn siglir undir upprunalegu nafni og við mættum henni einmitt utan við Rotterdam á Selfossi í fyrra, það var greinilegt að það mætti fara allavega eina umferð yfir hana af málningu. þá voru smíðuð nokkur 1100 teusa skip, en einmitt tvö þeirra eru komin til Samskipa núna, þau Hvassafell og Akrafell. Afar vönduð og góð skip.
Greinilegt að við erum komnir á úthafið núna, þung undiraldan gefur það til kynna, hún er svosem ekki mikil en maður verður vel var við hana. Menn eru við almenn skipstörf núna í blíðunni. Veðrið notað til að mála og dytta að hlutum. Það er heilmikil yfirferð að sinna skipi sem þessu, og við þá sem kalla farmenn sápukúlusjómenn vil ég segja að það eru miklar ranghugmyndir. Farmannsvinnan er fjölbreytt og hér er mikil vinna, og það tekur í að sjóbúa farm á svona skipi, vitanlega eru þrif einhver partur af þessu. En það er partur af sjálfsvirðingu manna og stolti að vera á hreinum og glæsilegum farkosti.
Engilbert skipstjóri við stjórntökin, en þessi dönsku skip eru afar vel útbúin fyfir stjórntök.
Dálítið langt niður á afturdekk úr brúnni, eða 8 hæðir alls. Sjáið ofan á Jóa bátsmann, hvar er Jói???
Meiri morgunroði úr Kielarskurði.
Eimskipsmerkið á skorsteininum ber við Stórabeltisbrúna. Hér eru það Íslendigar sem færa þér vörurnar heim
Siglt í sól á dönsku sundunum.
Allar myndir Einar Örn Einarsson.
Kveðja heim frá M/s Goðafoss
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fórum um Kielarskurð síðustu nótt. Þessi mynd eru af skipinu þegar það fór í gegn um skurðinn í síðustu ferð (af Shipspotting.com), skipið var í dokku í júní og lítur því vel út á myndunum. Eins og töffari í sparifötunum. Þess má geta til gamans að brúin á Goðafossi er breiðari en sem svarar lengd hvalaskoðunarskipsins Eldingarinnar blessaðrar. Tekur mig 40 skref í röskri göngu á milli brúarvængja, eða þvert yfir brúna. Einhverntíma hefði þetta þótt risaskip, en í dag er hann harla lítill við hliðina á hinum raunverulegu risaskipum, en hann verður seint kallaður lítill samt. það er smá spölur að hlaupa niður allar hæðirnar og fram á bakka til dæmis.
Svona til að átta sig á lengdinni á honum, Mynd af Shipspotting.com
Ég tók nokkrar myndir í Skurðinum við morgunár. Fallegt að sigla á móti morgunsólinni. Goðafoss er eitt af þeim stærri skipum sem geta farið skurðinn, sérstaklega vegna hæðarinnar, en það þarf að sigla undir nokkrar brýr þar. Stundum eins og það sé verið að sigla allt ofan af skipinu tilfinning, þegar siglt er undir sumar brýrnar.
Smellið á myndirnar til að fá þær í stærri útfærslu.
Morgunár yfir þýskri grund. Mynd Einar Örn Einarsson
Umferð um Kielarskurð í morgunroða. Mynd Einar Örn Einarsson
Þarna kom eitt af þessum momentum sem sjómennskan færir manni, fegurð svo maður má vart mæla. Þessi dýpt og breidd í andstæðunum gerir okkur sjómenn svo lundaða sem við erum. Sá sjómaður sem ekki finnur fyrir því er ekki alvöru sjómaður segi ég.
Einhverntímann hefði þessi þótt stór, en við lítum ofan á hann úr brúnni á Goðafoss. Jakob vinur minn myndi kalla þetta trilluræfil. Ljósm. EÖE.
Stór, en samt lítill. Ljósm. Einar Örn Einarsson
Goðafoss í Kilearskurði í glampa morgunsólar. Mynd af Shipspotting.com
Gaman er líka að sigla undir Stórabeltisbrúna. Ekki laust við að maður upplifi smæð sína verulega við að sigla þá leiðina.
Stórabeltisbrú fyrir stafni. Ljósm. Einar Örn Einarsson
Á leið undir Stórabeltisbrú. Ljósm. Einar Örn Einarsson.
Best að myndirnar tali sínu máli við ykkur, sem eruð fjarri þessum veruleika, sjarminn við siglingarnar er meðal annars fólginn í þessu, að upplifa þetta.
Kveðja á ykkur heima.
Over and out.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.7.2008 | 00:26
Rólegt í Rotterdam, Hamborg heillandi sem fyr.
Vorum í Rotterdam fram undir miðnætti í gær. Lóðsinn var enn uppi og við hálfnaðir niður fljótið þegar ég kom upp á vaktina. Sá gamli (Goðafoss) rótaðist áfram að vanda, og maður tók fram úr hverju skipinu á fætur öðru norður með ströndum, með stefnu á Elbu ósa, en Hamborg er næsti viðkomustaður.
Var rólegur í Rotterdam, fór upp á sjómannaheimilið i Hejplaat, sem er rétt hjá Uniport kajanum sem skip Eimskips liggja við. Hejplaat er lítið þorp (hverfi) yst á nokkurskonar nesi og er umlukt gámahöfnum á þrjá vegu, dálítið skrýtið að sjá þetta eins og skrattan úr sauðaleggnum þarna, þarna eru gamla götur, kirkja og alles. Á sjómannaheimilinu fórum við í smá bolta, körfu og fótbolta, fengum okkur svo hressingu úti á verönd í 28 °c hita, ég tók nokkur lög á píanóið þarna við lófatak gesta og gestgjafa.
Hamborg í kvöld, komum eftir kvöldmat. Gaman að sigla upp Elbuna aftur, engin smá sigling svona langt inn í land, til Hamborgar. Mikið fallegt að sjá á leið upp Elbuna, siglt framhjá Cuxhaven og fleiri bæjum. Það er tilkomumikið að sjá Airbus verksmiðjurnar á árbakkanum en þar eru glerveggir að ánni og maður sér risavélarnar í byggingu, flugbraut er austan við skýlin.
Þá eru margar fallegar byggingar á skógi vöxnum árbakkanum.
Hamborg hin mikla menningar og hafnarborg hefur mikið breyst síðan ég var hérna að læra sumarið 1990, þá leigðum við Jón heitinn Björnsson organisti i Borgarnesi, íbúð Hilmars Arnars og Hófý uppi í Vinterhude. Ég sótti tíma í Michael kirkjuna hjá prófessor Dickel sáluga.
Ég fór upp í bæ í kvöld, það er verið að byggja nýtt hafnarhverfi fyrir farþegaskipin og afgreiðslu þeirra neðan við Hauptbahnhof, og mikið fjári eru þeir að gera þetta smekklega, engar endemis morgunblaðshallir hér eða líkt og önnur stórslys í Reykjavík, húsin eru í Hamborgarstílnum, brotin upp með nýjum straumum í bland öðru hverju, á smekklegan hátt. Gaman að þessu.Erum við heima ekki alltaf í of miklu tilfinningalegu uppnámi þegar við dritum niður byggingum og nemum nýja siði? Gettóblokkirnar fyrstu við Skúlagötu eru sorgleg dæmi þess, hús sem ætla að eldast illa.
Fékk mér göngu og fór í Spa, heitan freyðandi nuddpott, þurrgufu og blautgufu. Við sem drekkum ekki eigum að gera eitthvað fyrir okkur líka ;)
Er á næturvaktinni hérna í hitanum í Hamborg, eitt gengi að losa úr framskipinu, koma fleiri til starfa með morgninum. það er stemming í þessu hérna. Förum annað kvöld ( eða í kvöld) væntanlega Kielarskurðinn til Århus í Danmörku. Þetta er síðasta ferð Goðafoss til Hamborgar, en skipið hefur siglt á Hamborg síðan það kom til þjónustu Eimskips, en vegna breytinga á rútunni munu Brúarfoss og Selfoss fara á Hamborg í stað Dettifoss og Goðafoss.
Pong fékk hringingu frá danska sendiráðinu, allt til reiðu fyrir hann að sækja passann sinn þangað með áritun til Íslands.
Kveðja frá m/s Goðafossi í Hamborg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.7.2008 | 13:09
Siglt í þoku í Norðursjó, smá innsýn í siglingu við slíkar aðstæður.
Norðursjórinn er dálítið ævintýrakenndur í þoku sem þessari. Þokan var enn svartari í nótt, en hún er núna. Þurfti að púsla dálítið í traffík í nótt og eitt skipið fór ansi nærri bakborðssíðunni, en við höfðum rætt saman áður til að einfalda siglingu allra skipanna sem voru í hnapp, þá treystum við okkur til að mætast þröngt, þrátt fyrir þokuna, enda við á gagnstæðum stefnum en önnur skip voru þvert á leið okkar tveggja, og Goðafoss var að draga uppi eitt skip á sama tíma sem hefti mig að beygja mikið á það borðið. Hann fór 0,150 sml frá mér og ég sá ekki móta fyrir honum. Eins og að fljúga blindflug. Reyndar sá ég ekki aftari kranann á eigin skipi úr brúnni. Stundum eru aðstæður á þann veg að menn eru á þröngum leiðum eins og í nótt að þá var land á eina hliðina og rif á hitt borðið og tveir fiskibátar að veiðum náttúrulega ákkurat á þessu svæði. Í aðstæðum sem þessum blessar maður í bak og fyrir siglingartækin sem eru orðin svo fullkomin og þægileg notkunar. AIS Automatic Identification System segir manni nafn skips sem er innan ákveðins radíuss, svo maður barasta kallar viðkomandi skip upp og menn sammælast um hvernig best sé að haga siglingunni svo öruggt sé. Málið er að það þarf að nota þessi tæki, og um að gera að hika ekki við að kalla upp skip sem maður þarf að sigla nærri til að hafa allt á hreinu og spyrja aftur ef maður er ekki viss. Td. segja " I turn 10° port and we will be red to red CPA X,X miles" og viðkomandi endurtekur og svo vice versa. Þá getur maður siglt rólegur og hefur vald á aðstæðum. Aldrei of varlega farið. Skip eins og Goðafoss með sæþunga (displacement) upp á 21 245 tonn, eins og hann er núna, er ekki stöðvað á augabragði og maður tekur ekki stóra beygju án fyrirvara á meira en 20 hnúta ferð. Þess vegna verður að hugsa fyrir öllum stjórntökum í tíma og með fyrirvara. Grunnatriðið er samt, að vita hvar maður er staddur, og hvert er verið að fara, og hvernig á að fara þá leið, síðan að sannreyna stefnu, hraða og áform þeirra skipa sem ógna öryggi siglingarinnar.
Er þetta ekki bara eins og í lífinu sjálfu? Ef maður lendir í aðstæðum sem villa manni sýn, nú eða aðstæður skapa þoku og óvissu í sál og sinni. Þá er ráðið að taka stað og átta sig, reyna að komast að því hvernig haga á hraða og hver hin nýja stefna er til að komast á áfangastað, án þess að stranda, eða lenda á öðrum, eða sama við aðra. Sum svæði forðast maður að sigla um vegna sjólags, strauma, grynninga og fleira. Það að vera navigator eða siglingarfræðingur er skemmtilegt starf og krefst þess að hafa yfirsýn og geta lagt mat á aðstæður og bregðast við atvikum sem geta komið upp allt í einu, án þess að missa tökin og fara í panik. Mikilvægt að eiga alltaf innistæðu, í formi þekkingar og kunnáttu, þekkja hvernig skipin bregðast við stjórntökum og hvernig þau haga sér. Bera virðingu fyrir viðfangsefninu semsagt. Þetta er bara eins og AA hehehe. Gaman gaman.
Olíuborpallarinir fá dulúðlega ásýnd í þokunni, stundum standa hæstu punktar á þeim upp úr þokunni og oft má sjá eld loga upp úr skorsteinum á toppnum, sérstakt að sjá þetta. Þessi stálskrímsl fá á sig ævintýralegan blæ. Fer að beygja meira austur í og þar siglum við á milli sandrifja um stund á leið okkar til Rotterdam, hinnar miklu hafnarborgar.
Maður er vel haldinn eftir kræsingarnar hjá Simba sem er fagmaður fram í fingurgóma og hefur það lag að elda mat sem er uppfullur af góðu karma og greinilegt að honum finnst gaman að elda. Það finnur maður í hverjum bita.
Kveðja úr Norðursjó.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.7.2008 | 13:41
SA af Færeyjum, og lífið gengur sinn gang.
Blíðan í dag. Vorum að sigla út úr Færeyjaþokunni, hæg austlæg átt, sjólítið. Ekki amalegt að renna yfir hafflötinn á farkosti sem þessum, m/s Goðafoss, en hann ásamt Dettifossi eru stærstu kaupskip Íslendinga, en því miður ekki á íslensku flaggi. Hér er íslensk áhöfn. Getum sagt mannval, hér ganga hlutir fyrir sig eins og smurð vél, enda veitir ekki af á skipi sem getur borið yfir 1400 gámaeiningar (teus). Hér er skipstjóri Engilbert Engilbertsson, sem staðið hefur pliktina í 50 ár, höfðingi hokinn reynslu. Ekki amalegt fyrir stýrimann eins og mig að geta lært af slíkum höfðingja. Hér væsir ekki um mann, klefinn minn 4x stærri en um borð í varðskipinu, á 7 hæð yfir sjó heheh, góð tilbreyting og reynsla, maður getur alltaf bætt við sig þar.
Erum á góðum tíma, þanig að ekki þarf að keyra fulla ferð. Stoppuðum í Þórshöfn í Færeyjum í nótt. Gaman að sjá þessa skipstjóra hérna koma þessum stóru skipum uppað bryggju í þröngum höfnum eins og Thorshavn. Snillingar! ekki þarf á dráttarbátum að halda. Kunnáttan, lagnin og afburðar góð stjórntök og búnaður skips haldast þar í hendur, að ógleymdri skipshöfn sem stendur á sínum póstum frammi á bakka og aftur á skut.
Í þessum rituðu orðum gengur grindhvalavaða hjá og fer aftur með bakborðssíðunni, kannski á leið til Færeyja að mæta sínum örlögum þar, eins og margar vöðurnar hafa gert í gegn um ár og aldir. Fyrr á vaktinni var mikið líf hnýsur um allan sjó, stórhvalablástrar bera við sjóndeildarhring, langreyðar greinilega. Hvalmannahjartað tekur kipp, eitthvað sem víkur seint úr sál og sinni. Alltaf þegar ég sé langreyðar, sandreyðar eða búrhvalsblástra, hleypur mér kapp í kinn,einhverslags veiðihugur, sem ég finn ekki fyrir við hrefnu og hnúfubak, sem ég hef verið að skoða í gegn um árin. Skemmtileg pæling, hvernig mannshugurinn vinnur.
Stefnan á Pentlant firth eða Pentilinn, Rotterdam á mánudag.
Já undarlegt er þetta, vakna í Pattaya á þriðjudagsmorgni, kominn á N atlanshafið á útleið á fimmtudegi.
Allavega ekki tilbreytingaleysið hér.
Kveðja á ykkur í landi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.7.2008 | 17:35
Heathrow a heimleid. Frettir af Visa fyrir Pongsa.
Er farinn ad thekkja Hethrow ansi vel , enda tidur gestur herna. Frabaert flug ad baki med Jet airways, en flugvollurinn i Mubay. Ehemm. Eg verd bara ad koma med ser faerslu um thad fyrirbaeri. Ekki skanadi thad thar. Skemmtun fyrir mig ,en sumir foru a limingum tharna. Gott ad vera endurnaerdur eftir allt nuddid. Fekk heila saetarod i velinni eins og sidast. Indverskir flugthjonar hafa eitthvert dalaeti a mer , heppinn eg thar. Frabaer matur tharna um bord og thjonusta. Vel thess virdi ad fara med theim, Gott ad brjota svona langt flug upp med einni millilendingu. gott fyrir sal og likama.
Er semsagt a leid heim. Pong fylgdi mer a flugvollinn eins og vant er. Naest verdum vid vonandi badir a ferdinni saman.
Frettir: Pong fekk simtal i gaer. Sendiradid i Bangkok. Danska sendiradid ad brillera eins of fyrri daginn, thurfum ad gera sma bankatrikk, sem vid reyndar gerdum.( Nu er eg med tvo reikninga i bonkum i Thailandi, hehe meira ad segja med Thailenskt debetkort). Hann kemur heim til Islands 27 september. Gaerdagurinn or allur i ad redda flugi fyrir hann, hann fer a buisnessklass , til Kaupmannahafnar, fengum finan dil fyrir hann med millilendingu i Islamabad. Mikill spenningur i gaer semsagt. Tharf ad dila vid Flugleidi um heimferdina fra Cph, langar ad saekja hann thangad.
Mikill spenningur i Pongsa vegna thessa.
En meira sidar.
Thokkum godar kvedjur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.7.2008 | 17:51
Nokkrar myndir fra Thailandi.
Lidur ad brottfor heim, flyg a thridjudagsmorgni eldsnemma fra Bangkok, er alveg til i ad vera lengur sko hehe. Nokkrar myndir fyrir ykkur sem hafa verid ad suda um thaer.
Eg og monkey boy sem heitir Dia reyndar
I thailensku nuddi 'a Bhun Sampan
I tveggja tima thai nuddi, madur losnar vid aratuga langa streitu og othverra
I sunnudagsmessu i St, Nikolas kirkjunni vid Sukumvit, thar er oflugur katholskur sofnudur, sem er vid hlidina a Sukumvit moskunni, rett vid gatnamotin a Central Pattaya road
Buid ad vera frabaert!
Kvedja Einar og Pong
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.7.2008 | 05:30
Morgunveður að hætti hússins, Thailenskur stíll, á veröndinni á Wanpen condo, á Soi Kanoi.
Mamma hans Pong ásamt litla bróður hans Pan ( sem verður seint talinn lítill í raun og veru, er eins og naut, þykkur og mikill) og syni hans honum monkey boy honum Dia, hafa verið hérna í nokkra daga.
Morgunmaturinn var undirbúinn af þeim mæðginum, en ég eldaði í gær og fyrrakvöld. Morgunverðurinn var Kao pad gai, sem eru steikt hrísgrjón með kjúkling grænmeti og eggjum, ásamt grænmeti í lime sósu, þetta var snætt á veröndinni og okkur til samlætis þá komu nokkrir nautgripir úr haganum handan við götuna inn um hliðið og voru að úða í sig grængresinu okkur til samlætis. Hérna uppi á Pattaya hæðinni ( Pattaya hill) mætast jaðrar sveitar og bæjar, reyndar er alltaf jafn skrýtið að heyra Íslendinga tala um Pattaya sem bæ, en Pattaya er 3.-4. stærsta borg Thailands, með a.m.k. 1,5 milljón íbúa.
Mannlífið hér í borg er ansi fjölbreytt, svo ekki sé nú vægara sagt. Ímynd Pattaya heima á Íslandi er gjarnan sú að hér sé ekkert annað að sækja en vændi og sukk og svínarí. En ef við reynum að rýna betur í þetta þá er staðreyndin sú að þessi vændisbransi er kannski 3-5 þúsund manns af 1,5 milljónum. En þessi ímynd sem er færð heim til Íslands segir kannski meira um fólkið sem færir hana heim ,en um staðinn sjálfan. Ég hef hitt íslendinga hér sem eru fastir í vítahringnum, fara á barina og eru á damminu eins lengi og fært er, sofa frameftir og svo fer dagurinn í það að rétta sig af og gjarnan farið í næstu loftkældu verslunarmiðstöð, sem betur fer fleiri sem njóta þess fjölmarga sem hér er að hafa. Mér dettur oft í hug þegar ég dvaldi í Hamborg í Þýzkalandi um nokkurra mánaða skeið, þá fór ég þangað með ímyndina um St. Pauli hverfið og Reeperbahn í farteskinu, sem er má segja rauða hverfi þeirra. En sú Hamborg sem ég kynntist var hin menningarlega og sögulega og sú mikla vagga menningar sem hún í raun og veru er. Enn hitti ég samt fólk sem heldur Hamborg vera höfuðborg hórdómsins, en rennur ekki í hinn minnsta grun um hvílíkar perlur eru þar að finna, og hversu agnarsmár þessi vændisbransi er í raun og veru.
Hér er sem betur fer ekki mikið um eyturlyfjaneyslu, löggjöfin gagnvart eiturlyfjum er einföld; ef þú smyglar eiturlyfjum til Thailands er það einfalt Dauðadómur, það er stutt síðan að yfirvöld hér hættu að taka útlendinga af lífi fyrir slíkt , en dómar yfir þeim eru afar harðir samt.
Eins vill bregða við að fólk sem hefur lent undir í baráttunni í vesturheimi, tapað í baráttunni við Bakkus, flyst hingað og ætlar að breyta neyslunni, í stað þess að taka á hinum raunverulega vanda og gefast upp og hefja nýtt líf utan við skugga Bakkusar. Það fólk því miður endar oft ævi sína hér, og algengar eru frásagnir fjölmiðla hér af sjálfsvígum vesturlandabúa, og sögunni fylgir oftast óhófleg neysla áfengis. Það er eins og AA bókin segir, það er sama hvað við reynum til að breyta neyslunni, alki er alltaf alki. Gústi vélstjóri segir, rotta er alltaf rotta, ef þú setur rottu í fuglabúr og hún gýtur þar, þá er afkvæmið ekki fugl heldur rotta. Annar spámaður talaði um úlfinn í sauðagærunni.
Pattaya er borg sem aldrei sefur, þú getur alltaf farið niður á næsta stræti , þar eru litlir veitigavagnar með mat sem þú getur fengið þér ef svengdin kallar. Vitanlega eru glæpir hér líkt og í öllum öðrum borgum í þessum heimi, en harkalega er tekið á slíku. Eitthvað er um vasaþjófnaði og slíkt. Hér þarf sömu aðgátar við og í öllum öðrum ferðamannaborgum í heiminum.
Ég hef verið að komast meira inn í Thailenskt samfélag, mér líkar það vel, þeir eru mikið fjölskyldufólk. Að borða saman er þeim mikilvægt, sem og þessi samvera fjölskyldunnar. Þeir eru botnlausir flestir, geta verið að éta daginn langan. Hér eru búðarholur nánast í öðru hverju húsi, og síðan eru allir þessir markaðir. Fólk stoppar við þessa litlu veitingavagna til að seðja hungrið, á leið heim til að elda kvöldverðinn hehe. Það er þeim mikilvægara en dauðir hlutir að eiga gott samfélag yfir mat og rabba saman um lífið og tilveruna.
Ég mæli með Thalandi sem áfangastað fyrir fólk sem vill njóta þess að vera í munaði, án þess að þurfa að borga fyrir með sálu sinni. Fyrir sullarana er það gott tækifæri að koma hingað og hvíla sig á drykkjunni, hægt er að fá frábæra ávaxtahristinga á flestum veitingahúsum, fara í hand og fótsnyrtingu, thainudd eða olíunudd á hverjum degi, enda hvern dag með fótanuddi. Borða þennan holla góða mat, hvíla sig á þessu vestræna dóti, en fyrir þá sem örvænta þá er Mc Donald og Kentucky fried hérna líka, þetta skríður yfir allan heiminn með sinn vibba og tilheyrandi sóðaskap umbúðir og þess háttar. Nota dagana í að skoða marga athyglisverða staði hér í grennd, fara á ströndina, markaðina og fá sér göngu í mannhafinu við götur borgarinnar. Hér eru umtalaðir golfvellir, sportköfun, skotsvæði , hægt að fara á fílsbak og fleira og fleira.
Fyrir sukkarana þá er náttúrulega nóg við að vera, en barirnir hér líta eins út og barirnir heima, sömu lögin spiluð, sami hávaðinn , bara annað fólk sömu drykkir sami kaleikur að bergja af hið beiska, hef það fyrir satt að timburmenn eru eins hér og heima, stundum öllu verri í hitanum.
Laugardagur hádegi. Ekki bólar á símtali frá sendiráðinu enn vegna VISA fyrir Pong. Samt er útlendingastofa búin að afgreiða þetta. Þetta er slítandi en samt...... þetta kemur allt. Erum á leið í bæinn, kaupa thai silki fyrir mömmu. Langt thai nudd mmmmm og ýmilegt fleira. Fótanudd í kvöld á frábærum nuddstað rétt handan við hornið á Bun Samphan og innkeyrsluna í Chockhai village 5 þar sem Hafsteinn býr.
Meira síðar.
Pong biður að heilsa þeim sem hafa sent honum góðar kveðjur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Einar Örn Einarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
baldurkr
-
benna
-
bumba
-
jaxlinn
-
elisabeta
-
jaherna
-
vinursolons
-
frikkih
-
garun
-
gtg
-
gretarmar
-
gudni-is
-
gudbjornj
-
gutti
-
skipperinn
-
gurrihar
-
hallibjarna
-
vulkan
-
heidathord
-
hildurhelgas
-
snjolfur
-
jakob
-
jenfo
-
johanneliasson
-
jonaa
-
jarnar
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
kikka
-
lillagud
-
cornette
-
magnusthor
-
maggadora
-
solir
-
oliskula
-
olofdebont
-
dj-storhofdi
-
percival
-
ragnar73
-
seinars
-
fusinn
-
siggiholmar
-
smm
-
villiov
-
toti-ripper
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar