Smá innsýn í laugardagsverkin á mínu heimili. Hvað er þetta með mig og Flugleiðir?

Já heil og sæl góðir hálsar.

Er kominn í hús eftir að hafa farið sem skipstjóri á Eldingu II í ferð sem ekki var farin , vegna veðurs nefnilega.

Hér í færslunni er ekki um afrekaskrá typiskrar vesturbæjarhúsmóður (fyrirmyndar) að ræða, hvar ég fer hamförum um íbúðina með skuplu á hausnum í tuskumaníu, með bónklútinn undir annari löppinni, á meðan kæfuketið mallar á vélinni og sultan hleypur í krukkunum.

Aðalverkin hér voru í gegn um símtólið, við mitt ástkæra (hóst) fyrirtæki Hvimleiði, sem er í FL group og sér um flugbókanir og svoleiðis lítilræði.

Nema hvað! sagði kerlingin og spýtti mórauðu. Eftir ófarir gærdagsins hjá Pong átti ég erindi við FL batterýið. Hringdi og bar upp erindið með að fá endirgreiddan miða Pongs sem hann getur ekki notað vegna þess að hann er upptekinn bókstaflega, staðreyndin er sú að á sama tíma verður hann væntanlega dottandi um borð í Airbus flugvél SAS972, einhvernstaðar í grennd við Indland.

Nú verður flutt leikritið FLvélin og kúnninn.

Persónur og leikendur í FLvélinni og kúnninn:

FL afgreiðslustúlka: Anonymous.

Kúnni: Einar Örn Einarsson.

1. þáttur og lokaþáttur

 

FL afgreiðslustúlka: Halló get ég hjálpað þér

Kúnni: Já, þarf að fá endurgreiddan miða, sem ég borgaði forfallatryggingu á.

 FL afgreiðslustúlka: Dó einhver? eða lenti á spítala.

Kúnni: HA....uuuuu.....eru ekki alltaf einhverjir að deyja og veikjast?

FL afgreiðslustúlka: Nei ég meina sem þurfti að nota miðann. Eða einhver í fjölskyldunni, skilurðu.

Kúnni: Nei sem betur fer ekki.

Hér styttir höfundur handritið verulega, en það var eins og að tala við vél, FLvél, ekki flugvél sko.Smile, eftir að hafa skipt um eyra ( ekki bókstaflega)  til notkunar nokkrum sinnum, fékk ég skattinn endurgeiddan.

Eftir 35 mín:

Kúnni: Þakka þér fyrir og vertu blessuð.

FL afgreiðslustúlka: Gessovel.

Tjaldið fellur . Endir.

Satt að segja þá fallast mér hendur, hef ekki tuskuorku í dag, vona að mér sé fyrirgefið.Blush

Fréttahornið: Pong er með boardingpassann í hendinni, alsæll og gengur um borð innan tíðar, semsagt SAS gamli dugði. Mikil hamingja í hans hjarta og eftirvæntingin meiri ef eitthvað er. Skyldum við sem búum í landinu Íslandi, kunna að meta hvers virði það er að geta ferðast vítt um heim nánast takmarkalaust?

Lærdómur: Aldrei að gefast upp. Ástin sigrar og Pollýanna klikkar ALDREGI.

Knús á ykkur. Góðar stundir.Thailand 2. ferð 031

 


Klúður í Bangkok, taugatitringur í vesturbænum, reddaðist með skandínaviska laginu.

Thailand Jul. 2008 006Pongsi var kominn út á flugvöll í Bangkok, albúinn að fljúga um Islamabad til Kóngsins Kaupmannahafnar og þaðan heim til Íslands á dýrasta klassa hjá Royal Pakistan airways, þar sem sætin eru í raun eins og kojur og það afstúkaðar með heimabíó.

Hann var kominn kallgreyið út á völl 3 tímum fyrir tékk inn tímann. Var fyrstur við deskinn, en einhver fjandinn var að. Klúður með bókun..........halló til Bangkok í desember, ekkert að greiddum miðunum sem voru fra Bangkok til Köben.

Ég fékk sms: darling we have  problem.´Næstu 2 tímana var ég í símasambandi við Pakstana, thailendinga og ég veit ekki hvað, sem sögðu yes sir , but no sir. Gátu ekki tekið kreditkortanúmerið mitt og ég veit ekki hvað. Ég hringdi til Pakistan til flugfélagsins þar var kona sem vildi selja mér miða til Hong kong, en ekki redda þessum legg, sem immigration í Thailandi hafði áhyggjur með, vegna visa afgreiddu til Íslands.

Nema hvað þegar korter var í brottför Pongsa frá Bangkok, þá gaus minn maður og ég hvæsti á liðið sem skildi hvert orð, heimtaði endurgreiðslu, og leitaði vefrænt til SAS gamla og bókaði drenginn fram og til baka fyrir Immigration, hann leggur af stað eftir 16 tíma og verður bara 15 tímum seinna á ferðinni.

Þurfti enn að fara yfir þetta torf í flugbóknunum. Flug frá Köben til Kef kostaði 50 þús með óskabarninu Hundleiðum áður Ættleiðum og þar áður Flugleiðum. EN sami leggur 10 þús með SAS í framhaldsflugi. Á ofurhraða var málinu reddað.

Fall er fararheill segi ég.

Nú var gott að reykja ekki og drekka ekki. Þetta var 5 pakka og 15 bjóra eftirmiddagur í gamla lífinu, en endaði sem 3 kaffibolla (erum að tala um stóra sjóarafanta, ekki svona píkubolla) , með tilheyrandi eftirköstum núna.

En við kvörtum ekki, smá aukaspenna og krydd í tilveruna.


Kominn í heim í undraland á ný!

Á leið framá í enda á Arnarfellinu

Þá er maður búinn að sigla hjá Sambó. Reyndur kafteinn á Arnarfellinu, en hann ásamt 2 öðrum um borð voru á Dísarfellinu þegar það sökk, sem setur mark sitt á menn og dýpkar reynslu þeirra. Það segir mikið um karakter slíkra manna að enn eru þeir á sjó og skila sínu með sóma.

Gaman að kynnast nýju fólki, nýju skipi og fyrirtæki. Takk fyrir mig strákar, topp áhöfn þarna. Smile

Menn fylgdust með gengisrússibananum úr fjarska í ferðinni. Einn Úkraínumaður þarna um borð var að spyrja míg út í þetta, og hann sagði " og þið segið okkur vera frumstæða og með undarlega stjórnarhætti".....ég svaraði engu.

Nóg er að hugsa á þessu heimili. Pong kemur á laugardagskvöld. Mikið að gerast.

Alavega stimpla mig inn hér með kæru bloggvinir.

 


Kveðja frá Rotterdam

Arnarfell2 Mynd af shipspotting.

Kveðja frá Rotterdam.

Gott að sigla hér, fínn mannskapur og greinilega góður andi hjá Sambó. Gott að vinna í þessari brú. Næstum nýtt skip, samt töluvert öðruvísi en dönsku skipin hjá Eimó.  Þetta skip er þýzkt, Sietas smíði. Góður andi í skipinu, en ég upplifi skip afar misjafnlega, er ekki einn um það að finna fyrir misjöfnum áhrifum þegar um borð er komið.

Förum í nótt til Cuxhaven og þaðan til Svíþjóðar, svo Danaveldi og þá Færeyjar á heimleið.

Er á sjómannaheimilinu í Hejplaat, á milli hafnanna þar sem Eimó skipin leggjast í Valhaven hjá Uniport og Beatrixhaven þar sem Sambó leggjast, kisi gamli hérna á sjómannaheimilinu kannast við mig og sefur í kjöltu minni á meðan ég kíki á póst og les fréttir að heiman. Var að spjalla við Pong á MSN en það styttist í að hann fari að koma heim.

Fer að hjóla aftur um borð, Jónas kokkur lánaði mér 100 þús króna hjólið sitt.

Kveðja á ykkur heima.

Einar Örn


Já hvað haldið þið, er ég ekki barasta farinn á sjóinn, Hissa?? Er lánaður. Sambandið? nei. Samskip heitir það.

Arnarfell

Jæja ekki stoppa ég lengi í landi, frekar en fyrri daginn.

Er lánaður um borð í Arnarfell skip Samskipa í næstu ferð skipsins. Kem aftur innan 2 vikna. Fínt að bæta við reynslubankann, það skilar sér strax í stafið hjá gæzlunni.

Gaman að prófa að sigla hjá Sambó gamla Smile Sietas skipin þýzku eru annáluð fyrir að vera góð sjóskip. Heldur er minna í lagt í plássið fyrir skipverja ef maður miðar við dönsku mublurnar eins og Örskov skipin. Held að ég geti alveg staðið undir nafni að vera sjómaður, allavega er ég mun meira á sjó en landi.

Kann vel við það, menn missa af miklu að fara aldrei á sjóinn.

Fögru fyrirheitin um blogg næstu daga fuku sinn veg, en sem betur fer koma dagar og koma ráð.

Er kominn með teljara á síðuna, Pong kemur þann 27. sept. Hef þurft að nota tímann vel að undirbúa komu hans, hann fer strax í Íslenskutíma blessaður þann 29. en það er afmælisdagurinn hans, þá verður hann 32ja ára.

Kveðja á ykkur mín kæru. Knús, kossar, bros eða klapp á öxl. Þið takið það sem þið viljið. Grin

 

 


Komið haust á hafinu, raunir tittlinga, spurningin var lengi hvernig tittlingar.

ÞúfutittlingurÞá er einn túrinn enn að baki. Vorum töluvert á djúpmiðum. Jón bryti brilleraði og við fengum siginn fisk að borða mmmmmm, ekki allir sem fögnuðu jafn mikið og ég , Pálmi og Týri, en siginn fiskur er hnossgæti. Ætti að setja í landslög að í hverri ferð skipa á íslenskri skipaskrá skuli bera fram siginn, skötu, saltað hrossaket og svið. Alltént er víst að skyndifóður að hætti bandaríkjahrepps er ekki okkur fyrrtöldum að skapi.

Greinilegt að haustið er komið. Litlir farfuglar höfðu greinilega borist af leið sinni yfir hafið, þegar fyrsta haustlægðin hægði á sér og blés þeim vindinn í fang, reyndu þeir að leita hælis um borð. Einn agnarsmár var tekinn í gjörgæslu, en líkaði ekki vistin meðal mannanna og dó í búri sem var búið að útbúa fyrir hann. Annar töluvert séðari komst inn í þyrluskýlið og hélt sig þar í felum, síðan þegar við vorum í höfn í Þórshöfn í Færeyjum var stóra skýlishurðin opnuð og út flaug hinn séði fugl. Eina nóttina reyndu einhverjir að komast inn um brúargluggana, en án árangurs. Svona er náttúran óvægin og miskunnarlaus þegar því er að skipta.

Menn fóru að þrefa um nöfn þessara fugla. Ég var viss um eitt að þetta voru tittlingar, en hvaða tittlingar, var ekki alveg víst með. Undarlegt að vera að þrasa um tittlinga úti á sjó.

Niðurstaðan var Auðnutittlingur, allavega sá sem dó í gjörgæslunni, sumir vilja meina að sá séði sem fluttist til Færeyja hafi verið þúfutillingur. Ég telst til leikmannaTounge þegar kemur að tittlingum svo að ég barasta læt það einu gilda hvað þeir heita.

En svona getur það gengið fyrir sig á sjó.

Allavega er ég kominn heim, sestur við gluggann góða og mun örugglega blogga eitthvað á næstunni.

Bros á ykkur bloggvinir Grin


Fríið búið, haldið til hafs á ný. Er kjaftbloggstopp eftir allt borgarstjórnardæmið.

Þá er það sjórinn enn og aftur.100_0942

Mun ekki blogga mikið, en get gefið einhver komment frá tengingunni þar. Ekki það að ég sé það mikill bloggmeistari.

Er eiginlega kjaftbloggstopp eftir allt borgarstjórnardæmið, ekki vegna þess að borgarfulltrúar eru að breyta sínu samstarfi innbyrðis, sem þeir mega samkvæmt lögum, heldur á þessu tilfinningalega uppnámi í fjölmiðlum og þessu endalausa sérplægna og eigingjarna bloggi í sambandi við þetta. Fólk er að missa sig í gremju  og stundum frekju, vegna þess að þeirra fólk er ekki við völdin. Þetta er gósentíð fyrir alkana, gremjan aðaleldsneyti alkoholismans nærist og dafnar sem aldrei fyrr.

Finnst reyndar sumir þarna ekki detta úr háum söðlum eins og Björk VIlhelms sem fór í fýlu og skipti um flokk vegna þess að hana þyrsti í meiri völd og gat ekki unað lýðræði eigins flokks, og svo stóra fórnarlambið Margrét Sverrisdóttir.... segi ekki meir. Nú er bara búið að breyta um fólk á fýluvaktinni.

Er að reyna að segja að það er ekkert eitt rétt eða rangt í þessu, Við kjósum á 4. ára fresti og það veitir þessu fólki umboð sem gildir þann tíma. Hér eru engin lög brotin hvað sem fólki "finnst". Vitanlega höfum við öll rétt á að hafa skoðanir og viðra þær, en reiði og gremja eru ekki skoðanir, heldur tilfiningar.

Hvernig væri að koma með eitthvað uppbyggjandi í staðinn? Ég segi fyrir mig ég kaus á sínum tíma og mun kjósa næst ef ég fæ að lifa.  Er sem betur fer pólitíkst munaðarlaus í dag, en pólitík var ígildi trúarbragða hjá mér lengi vel.

Himinn og jörð eru ekki að farast, það er ljóst. Borgarbatterýið mun starfa eftir sem áður. Ég vil bara spyrja að leikslokum í þessu. Allavega get ég ekki hugsað mér stjórnsýslu sem stjórnast af gremju og persónum sem eru vælandi fórnarlömb. SKil ekki hvað þessi væll er að ganga í kjósendur. Og hvernig á maður að svara skoðanakönnun um meirihluta sem er ekki einu sinni tekinn við? Er ekki allt í lagi með þetta system? Á maður að taka þátt í uppnáminu? Nei takk, ég hef ekki efni á því. Ég met mína andlegu heilsu meira en það. 15 borgarfulltrúar eru á launum við að stjórna borginni ALLIR!!! það stendur ekkert í lögum um meiri og minnihluta.

Pólitík er pólitík, hefur allltaf verið og mun verða áfram, og hún snýst um völd ekkert annað.

Oghananú.

Kveðja á ykkur. Ég sef rólegur hver sem meirihlutinn er í borginni. Það verður samt flóð og fjara, dagur , kvöld , nótt og síðast en ekki síst dagrenning sem felur í sér nýja von .

Bið kæra bloggvini ekki að taka þetta persónulega, en mig langaði bara að koma þessu út í loftið. amorol164n[1]SmileHeart


Hvað veldur? Þráir fólk að viðhalda hörmungunum og hatrinu?

Ef þetta er ekki stórglæpur þá veit ég ekki hvað.

Að svona lagað skuli gerast mitt í blómlegum samfélögum, að fólk geti safnað saman börnum til að innræta þau í þessa veru, finnst mér umhugsunarefni.

Er það virkilega svo að fólk fái sig til þess að afhenda börn sín í slíkan heilaþvott. Er þessi þrá eftir 3. ríkinu svona sterk að fólk fórnar æsku og sakleysi barna sinna til að helga málsstaðinn?

Þessi frétt allavega kemur róti á huga minn.

Líkt og ég var að tala um í færslu minni um gleðigönguna, þá held ég að það megi aldrei gleymast að minna fólk á fortíðina, um hvaðan við komum og hvaða leið var farin til þess.

Það þarf að staldra við í neyslupartýinu og taka veruleikatékk öðru hverju.

Er þetta ekki annars misnotkun á börnum, eða er það bara bundið við eitthvað kynferðislegt?

 


mbl.is Hitlersæskubúðir rannsakaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðigangan. Gengið í gleði en grafar alvara að baki. Ég ók thailenska vagninum.

Goðafoss og gaypride 110

Gleðigangan í dag. Víst er að mörg voru sporin þar. 

Lengi vel vakti þessi hátíð með mér blendnar tilfinningar. Ég gat ekki glaðst heilu hjarta. Í stað þess var ég hryggur vegna þeirra sem vörðuðu veginn. Gengu hin fyrstu spor svo úr varð slóði sem stækkaði og varð að hinum breiða vegi sem genginn er í dag.

Eitt get ég sagt ykkur, þau spor voru ekki öll gleðispor. Þeir skipta ekki tugun heldur telja í stærri einingum sem ég hef séð á eftir, þar sem gangan varð þeim um megn. Ég hef starfað í "periodum" á ólíkum tímum í stjórn og önnur verkefni, í öðrum tíðaranda, öðru samfélagi, má segja, sem betur fer. Fólk sem starfar mikið í slíkum aðstæðum er fljótt að tæma af tankinum, sérstaklega þegar persónuleikinn krefst sinnar athygli og viðurkenningar, sem fæst ekki eðlilega, þegar stór hluti lífs manns er öðrum hulinn, er pakkaður inn í skömm og neikvæðar hugsanir. Þar hafa brotnað og bognað hinar styrkustu stoðir.

Deyfingin við sársaukanum varð oft í formi þess að ganga aðra göngu, á vegi áfengis og umbreytandi efna, áfengisþokan og fíknirnar, gerðu illt verra og sumir gengu öngstrætið á enda og kusu að enda líf sitt, aðrir keyrðu líkama sinn í sjúkdóma, ætla ekki að telja allt það upp hér.

Sumir beindu sinni göngu inn um gleðinnar dyrnar, en kunnu sér ekki hóf í hinum gullnu veigum og enduðu utan við , urðu á endanum einangraðir og óttaslegnir.

Allt vegna hinna þungu dóma , sérstaklega þeirra sem gáfu sig út fyrir að vera í umboði kærleikans og manngæskunnar. Það gat verið sárt að leita hjálpar og vera vísað á dyr með formælingum og svívirðu. Slík sár svíða lengi.

Ástæða þess að ég nefni þetta hér, er sú að ég vil minnast þeirra sem hér um ræðir. Þakka þeirra göngur, án þeirra væri gleðin minni í dag. Í hugskoti mínu renna myndir þeirra allra. Ég minnist þeirra með lotningu og óendanlegu þakklæti þar sem þau vonandi ganga með okkur í öðrum víddum, þar sem enginn sársauki er lengur, aðeins birtan og gleðin ásamt sátt við Guð og menn.

Ég er líka þakklátur þeim sem stóðu sig svo vel í dag á öllum póstum í göngunni í dag, hvernig svo sem þeirra aðkoma var að því.

Síðast en ekki síst er ég þakklátur öllum þeim sem koma , senda kveðjur og fallegar hugsanir. Með því eruð þið líka að heiðra minningu þeirra sem ég hef hugsað til í þessari færslu.

Ég er sáttur í dag, þakklátur fyrir að hafa bjargast úr brimgarðinum mikla. Sumir þurfa sinn tíma að jafna sig á slíku volki. Í dag þarf ég ekki þá athylgi sem ég krafðis, þarf ekki þessa stóru viðurkenningu. Ég þakka það starfi okkar allra sem höfum á ólíkan hátt dregið þennan vagn, eins 12 spor leynifélagsins góða sem gerðu mér kleyft að sættast við lífið og vera ábyrgur þátttakandi í samfélaginu. Allt það fólk sem ég hef átt samfélag við í lífi og starfi um langa hríð, þakka ykkur fyrir líka. Met ég það mikils.

Er glaður í dag og það er full ástæða til. Tók þátt í göngunni sem bílstjóri fyrir Thailenska vagninn, sem er kannski táknrænt fyrir líf mitt í dag, en PongInLove kemur eftir nákvæmlega 7 vikur og er hann orðinn óþreyjufullur, held að hann sé búinn að pakka niður hehehe.

Knús á ykkur Heart

gaypride 2008 2


Grenjandi fitubollur í sjónvarpssorphaugnum. Föstudagskvöld við flóann.

FatÞar sem ég kom heim til mín eftir sundlaugina og göngu um vesturbæinn, hvar ég í mig teygaði angan runna og rósa, ásamt ilmi af nýslegnu grasi, ásteitin kisa gerði sér dælt við mig, og áttum við atlotsstund, farið var að húma og yfir mér andi innblásinn af borgarskáldinu Tómasi, var að hugsa að brátt myndi borgin fara að sofa við opinn glugga og allt í þeim dúrnum, kveikti á sjónvarpinu og SJÁ:

Í sjónvarpinu var raunverukeikaþáttur sem innihélt grenjandi fitubollur frá Amríkunni, háorgandi slökkviliðsmaður ásamt fleirum, vegna þess að þau voru að keppa í horfellingu (megrun) og áttu miserfitt með að hætta að éta, og hvað gerðist?

Ég fékk menningarsjokk. Andblærinn góði fauk úr vitum mér og út um svalahurðina, til sinna líka sem sveima yfir vesturbænum.

Hvað er að gerast í þessum heimi? Er þetta það sem S1 telur vera afþreyingu á föstudagskvöldi, er þetta það eina sem var hægt að draga upp úr sjónvarpssorphaugnum?

Ég kveiki á kerti og opna fyrir gömlu gufuna, sest við gluggann minn , við opna hurð, og leita eftir andblænum á ný.

Má ég þá frekar biðja um ástleitna kisu og töðuilm, en þennan sjónvarpsskarna frá Bandaríkjahreppi.

Er þakklátur fyrir slökkva og kveikja takkann . Það er nú það. Smile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Örn Einarsson

Höfundur

Einar Örn Einarsson
Einar Örn Einarsson

Starfa meira á sjó en á landi. Skagamaður brottfluttur, en alltaf Skagamaður samt  Skipstjórnarmaður og stoltur af því, tónlistarmaður líka.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 13238955 10209925009990683 1077508870570553214 n
  • 11147146 10155663157855151 374052219909610049 n
  • 11147146 10155663157855151 374052219909610049 n
  • IMG_3755
  • Rainbow in moonlight

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 51573

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband