Snúrublogg. 16 ár án áfengis.

 

 

11147146_10155663157855151_374052219909610049_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  1. mai 2015

Óminnishegri heitir

sá er yfir öldrum þrumir.

Hann stelur geði guma.

Þess fugls fjöðrum

eg fjötraður vark

í garði Gunnlaðar.     (hávamál)

 

Þá er hann upp runninn dagurinn sem ég staldra við í auðmýkt og þakklæti fyrir ár til viðbótar laus við óminnishegran, sem í krafti Bakkusar lagði líf mitt , sálu og líkama undir sig.

Er svo óendanlega þakklátur fyrir svo margt.

  • Mátt samfélags sem ræktar lausn við ofurvaldi Bakkusar
  • Kærleika og hreinskilni góðs samferðarfólks
  • Fyrir góðan lífsförunaut sem deilir með mér lífi án áfengis.
  • Hinum æðri mætti fyrir að taka af mér byrðarnar.
  • Að vera frjáls gagnvart fólki , skoðunum annara og aðstæðum.

 

Án þessa væri líf mitt snautt. Þar að segja ef ég væri lífs, gruna að Bakkus hefði tekið líf mitt sem toll ef mér hefði ekki hlotnast sú náð að þiggja lausn sem felst í andlegri leið.

Það að eiga líf sem er svo ríkt að innihaldi , starf sem ég nýt til botns. Er ekki sjálfssagt.

Að eiga samskipti við fjölda fólks án átaka er ekki sjálfsagt heldur.

Er fullur auðmýktar og þakklæstis.

Blessuð sé minning þeirra mörgu sem máttu lúta í lægra haldi fyrir þessum vágesti.

Ef einhver er að berjast í dimmum dal, vonleysis, ótta og reiði í heljargreipum fíknar og neyslu. Þá langar mig að segja. Það er til lausn. Eina sem þarf er að bera sig eftir henni og margir til þess að leiða þig veginn sem felst í andlegu ferðalagi sem breytir nótt í nýtan dag.

 

Takk fyrir mig allt hið góða fólk sem stendur mér nærri og hefur fetað veginn samferða mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Innilega til hamingju með þennan áfanga Einar.  Einhvern veginn hafði ég alltaf á tilfinningunni að lífið yrði þér gott því að þú varst alltaf ákveðinn í fara í gegnum lífið af jákvæðni og gleði og gera eins gott úr öllu og mögulegt væri.  Ég vona að þú hafir það ætíð sem best og njótir ávallt gæfu og góðs gengis.

Jóhann Elíasson, 26.5.2015 kl. 00:45

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Takk fyrir minn kæri. Þú ert aldeilis góð fyrirmynd með hvernig þú hefur tæklað lífið :)

Einar Örn Einarsson, 26.5.2015 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Örn Einarsson

Höfundur

Einar Örn Einarsson
Einar Örn Einarsson

Starfa meira á sjó en á landi. Skagamaður brottfluttur, en alltaf Skagamaður samt  Skipstjórnarmaður og stoltur af því, tónlistarmaður líka.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 13238955 10209925009990683 1077508870570553214 n
  • 11147146 10155663157855151 374052219909610049 n
  • 11147146 10155663157855151 374052219909610049 n
  • IMG_3755
  • Rainbow in moonlight

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 51308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband