12.8.2008 | 15:12
Hvað veldur? Þráir fólk að viðhalda hörmungunum og hatrinu?
Ef þetta er ekki stórglæpur þá veit ég ekki hvað.
Að svona lagað skuli gerast mitt í blómlegum samfélögum, að fólk geti safnað saman börnum til að innræta þau í þessa veru, finnst mér umhugsunarefni.
Er það virkilega svo að fólk fái sig til þess að afhenda börn sín í slíkan heilaþvott. Er þessi þrá eftir 3. ríkinu svona sterk að fólk fórnar æsku og sakleysi barna sinna til að helga málsstaðinn?
Þessi frétt allavega kemur róti á huga minn.
Líkt og ég var að tala um í færslu minni um gleðigönguna, þá held ég að það megi aldrei gleymast að minna fólk á fortíðina, um hvaðan við komum og hvaða leið var farin til þess.
Það þarf að staldra við í neyslupartýinu og taka veruleikatékk öðru hverju.
Er þetta ekki annars misnotkun á börnum, eða er það bara bundið við eitthvað kynferðislegt?
Hitlersæskubúðir rannsakaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Örn Einarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- baldurkr
- benna
- bumba
- jaxlinn
- elisabeta
- jaherna
- vinursolons
- frikkih
- garun
- gtg
- gretarmar
- gudni-is
- gudbjornj
- gutti
- skipperinn
- gurrihar
- hallibjarna
- vulkan
- heidathord
- hildurhelgas
- snjolfur
- jakob
- jenfo
- johanneliasson
- jonaa
- jarnar
- prakkarinn
- nonniblogg
- kikka
- lillagud
- cornette
- magnusthor
- maggadora
- solir
- oliskula
- olofdebont
- dj-storhofdi
- percival
- ragnar73
- seinars
- fusinn
- siggiholmar
- smm
- villiov
- toti-ripper
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 51491
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Auðvitað er þetta og öll valdbeiting, huglæg og líkamleg, bullandi ofbeldi á börnum.
Takk fyrir þetta.
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.8.2008 kl. 16:19
Tek undir það sem Jenný Anna segir. - Þakka þér fyrir að vekja máls á þessu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.8.2008 kl. 17:43
Ég er líka sammála Jenný Önnu.
Góð setning þetta: Staldra við í neyslupartýinu og taka veruleikatékk. Segir mjög margt.
Sigrún Óskars, 12.8.2008 kl. 23:00
Já veitir ekki af greinilega.
Það að fara svona með börnin er allsendis ótækt og hrein viðurstyggð.
Einar Örn Einarsson, 13.8.2008 kl. 00:06
Foreldrar þessara barna hljóta að vera á svipuðu stigi og þessir sem stunda heilaþvottinn á börnunum. Ekkert heilbrigt foreldri gæti gert barninu sínu svona illt.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.8.2008 kl. 01:23
Sammála Jóna
Einar Örn Einarsson, 13.8.2008 kl. 03:38
..og það vantar bara í sögulega staðreynd að ALLIR marskálkar Hitlers voru á kafi í dópi og kynlísfíkn. Ég hef átt samtal við f.v. SS foringja fyrir ca. 37 árum þegar ég bjó í Göttingen í Þýskalandi. Það samtal var vægast sagt ógeðfellt!
Óhugnalegt hvað fullorðið fólk leyfir sér að gera við sín eigin börn! Það er búið að kenna foreldrum þessara barna að það sé "heiður" að þau fái að að fara í sprengjuskóla Palestínu!
Vil bara taka það fram að börn sem verða hrædd, eru mötuð með sérstakri blöndu af hassish í þessum sprengjuskólum. Þá virkar heilaþvotturinn betur...
Ógeðslegt allt saman í kring um þetta..
Óskar Arnórsson, 13.8.2008 kl. 04:53
Já þakka þér kærlega fyrir Óskar. Athylgisvert og jafnframt óhugnanlegt.
Einar Örn Einarsson, 13.8.2008 kl. 22:45
Úff hvað það er margt ljótt til í þessum heimi, mikið hlýtur þetta fólk að vera sjúkt.
Það væri nú gott ef allir hefðu þessa hugsun að staldra við og gera veruleikatékk reglulega. Fólk yrði mun hamingjusamara og nægjusamara með það sem það á.
Takk fyrir góðan pistil.
Elísabet Sigurðardóttir, 14.8.2008 kl. 00:01
Þetta er ekki til að efla trú á mannkynið. Ég er ansi hrædd um að heimurinn fari ekki batnandi.. geri það aldrei. Þó ég vilji svo gjarnan trúa því gagnstæða.
Athyglisvert það sem Óskar segir. ég hef aldrei heyrt þetta. Er einhvers staðar hægt að nálgast þessar upplýsingar ummarskálka Hitlers? Annars kemur þetta svo sem ekki á óvart. Hvað er svo orsök og hvað er afleiðing skal ekki segja. Þá á ég við að þeir sem ekki fylgdu Hitler af hugsjón heldur af ''illri nauðsyn'' hljóta að hafa þurft að deyfa sig til að þola að horfa upp á allan hryllinginn.
Jóna Á. Gísladóttir, 17.8.2008 kl. 19:42
Allir marskálkar Hitlers voru á kókaíni, morfíni og amfetamíni. Ég man ekki hver var á hverju.
Enn einn þeirra Marskálkana, fór í meðferð til Svíþjóðar vegna eitulyfja neyslunnar. Svo fór hann aftur til Þýskaland og hélt áfram að drepa gyðinga. Það er bara að Gúggla þessu upp á netinu.
Flugmenn þýska hersins voru allir á Dexedríni og þurftu þess til að halda sér vakandi. Hitler vissi minnst af þessu sjálfur. Hann var bara með félagasínu sem var stjörnuspámaður og var hann aðalráðgjafi Hitlers. Stríð yfirleitt, er bara fjöldaframleiðsla á dópistum. Í Írak í dag, eru sendar valíumtöflur í 50 kílóa plastfötum.
Ein kona sem hafði unnið þarna sem læknir og var í eðli sínu mótfallinn öllu sem heitir dóp, sagði að það væri ekki hægt að vinna, nema éta þetta valíum á hverjum degi. Allur ameríski herinn er mataður með þessu sem vilja.
Það má alveg fara að tengja hermennsku og stríðsbrölt, svakalegri eiturlyfjaneyslu.
Börn sem notuð eru í hernaði, er gefið kókaín blandað með byssupúðri. Það lengir áhrifinn að blanda því saman.
Í Afganistan sem framleiðir 95% af öllu heróíni sem selt er um allan heim, gerði ótrúlegan fjölda rússneskra hermanna háðan heroíni. Það segir mér engin að þetta hafi ekki líka áhrif á Amerísku hermenninna þarna.
Nógu margir hermenn komu heim eftir Víetnamstríðið, og þá var heróíni smyglað m.a. í líkum af föllnum hermönnum.
Þegar búið var að jarða þá með viðeigandi hætti, komu "vinir" þeirra og grófu upp líkinn sem var búið að fylla með heróíni. Þá höfðu félagar þeirra í Víetnam fjarlægt öll innyfli og sett heróín í staðinn. Þetta komst upp fyrir tilviljun.
Hitler var haldin venjulegu mikilmennskubrjálæði og það á ekkert skylt við hugsjónir. Ef það slysaðist inn heilbrigður maður inn í Marskálkahóp Hitlers, sáu fíklarnir um að koma viðkomandi fyrir kattarnef...
Stríð og eiturlyf fylgjast ALLTAF að! Það er bara bannað að tala um það. Hann Veisenthal eða hvernig svo sem nafn hans er skrifað, nazistaveiðimaðurinn frægi, hélt marga fyrirlestra um Hitler og lifnaðinn á honum og Marskálkunum.
Ég trúi því að heimurinn fari batnadi. Enn fjölmiðlafólk er duglegt við að gefa eins skakka mynd af heiminum og hægt er.
Áhrifin er í samræmi við "fréttir" fjölmiðla sem eru að mestu um slys. hamfarir, stríð og átök og persónulegar "tragedíur"
Sorglegt að vita til þess að í Sviþjóð. að Bofors vopnaverksmiðjurnar seldu vopn í gegn um krókaleiðir til landa sem áttu í stríði, eins og t.d. Júgóslavíu, greitt með peningum sem voru fengnir í gegn um sölu á eiturlyfjum á götum Stokkhólmar.
Kanski til barna þeirra fullorðina sem sá um að koma þessu í verk og voru stoltir yfir því hvað þeir gátu selt mikið. Stundum á kostnað sinna eigin barna.
Þessi vítahringur er grátbroslegur. Enn engu að síður staðreynd....
Óskar Arnórsson, 20.8.2008 kl. 09:57
Takk fyrir þetta Óskar. Aldrei nokkurn tíma hef ég pælt í þessu og líður eins og ég sé enn blaut á bak við eyrun. Kannski loka ég ómeðvitað á greindarstöðvar heilans þegar kemur að svona málum. Vill bara ekkert af þessu vita. Kannski kominn tími til að stíga út fyrir boxið og fullorðnast
Jóna Á. Gísladóttir, 20.8.2008 kl. 12:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.