Er að horfa á alþingi í TV. Á hvaða trippi er hið háa alþingi???

Nú blöskrar mér.

Einar H. Guðfinnsson sem brilleraði svo vel í liðinni viku með því að auka þorskveiðikvótann ákkurat á þeim tíma sem verð á þorski er í lágmarki og frystigeymslur eru að fyllast af bolfiski.

Nú er greinilega brýnast að koma í gegn frumvarpi, sem ýtir undir meira atvinnuleysi í landbúnaði. Svo hægt sé að flytja meira inn af keti og landbúnaðarvörum, sem við hefðum ekki getað leyst út.

Ráðherra skal falið vald í auknum mæli samkvæmt þessu frumvarpi. Framsal valds.

Er ekki í lagi með fólk??? Ég bara spyr?

Ef Jón Baldvin og co hefðu fengið sínu fram um óheftan innflutning á landbúnaðarafurðum, þá er næsta víst að ekki væri mikið að éta hér á landi í ástandinu í dag, við ættum ekki gjaldeyri til að leysa það út.

Þessi EES samningur um allt þetta óhefta flæði hefur ekki verið að skila okkur mikilli gæfu, samanber hið óhefta flæði fjármagns.

Mér hrýs hugur við því ef það er satt að Jón Baldvin ætli að rísa upp af pólitískum dauða. Nú gargar hann sig hásann, snillingurinn sem byggði grunninn að kreppunni blindaður af EES. Ég vona að hann hvíli í friði sem lengst og til hans fari sem flestir sitjandi forystumenn í og haldi sig frá þvi að stjórna landsmálunum. Þeirra tími er liðinn. Fyrirheitna landið EB virðist ekki vera að brillera i dag. Írar vilja úr því aftur t.d.

Veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta satt að segja.

Eru ekki brýnni mál sem þarf að ræða OG TAKA Á á hinu háa alþingi?? Spyr ég einn úr sauðsörtum almúganum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Axfjörð Sigfússon

Sko! þetta gastu!  En þú ert samt frábær! Ég skora á þig í kaffibolla!

Sigfús Axfjörð Sigfússon, 22.1.2009 kl. 16:03

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Áskorun tekið. Hvað með morgundaginn?

Einar Örn Einarsson, 22.1.2009 kl. 17:14

3 Smámynd: Sigfús Axfjörð Sigfússon

Jamm! veldu stund og stað!

Sigfús Axfjörð Sigfússon, 22.1.2009 kl. 17:47

4 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Ég hringi í þig um hádegið

Einar Örn Einarsson, 22.1.2009 kl. 17:51

5 Smámynd: Sigfús Axfjörð Sigfússon

Sigfús Axfjörð Sigfússon, 22.1.2009 kl. 18:05

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Alþingismenn eru ekki í tengslum við ástandið í þjóðfélaginu.  Enginn hefur sagt af sér, enginn verið rekinn, engar eignir frystar enginn handtekinn fyrir landráð, og stjórnarskrárbrot, o.s.f 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.1.2009 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Örn Einarsson

Höfundur

Einar Örn Einarsson
Einar Örn Einarsson

Starfa meira á sjó en á landi. Skagamaður brottfluttur, en alltaf Skagamaður samt  Skipstjórnarmaður og stoltur af því, tónlistarmaður líka.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 13238955 10209925009990683 1077508870570553214 n
  • 11147146 10155663157855151 374052219909610049 n
  • 11147146 10155663157855151 374052219909610049 n
  • IMG_3755
  • Rainbow in moonlight

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband